Tónskóli Fjallabyggðar

Vefsvæði Tónskóla Fjallabyggðar

Tónskóla Fjallabyggðar

Velkomin á heimasíðu Tónskóla Fjallabyggðar.

Þessari heimasíðu sem nú lítur dagsins ljós, er ætlað að veita upplýsingar um Tónskóla Fjallabyggðar.
Rannsóknir hafa leitt í ljós að tónlistarnám hefur bætandi áhrif á annað nám sérstaklega í raungreinum.
Tónlistarnám eykur einbeitingu og stuðlar að betri vinnubrögðum hjá nemendum.
Auk þess hefur tónlist og tónlistaiðkun bætandi áhrif á sálarlífið og stuðlar að gleði og lífsfyllingu.
Tónlist hefur róandi áhrif á alla, samleikur og kórsöngur stuðlar að meiri félagsþroska
hjá börnum.  Vonandi verður þessi heimasíða til þess að hvetja fólk til að kynna
sér betur Tónskóla Fjallabyggðar og taka virkan þátt í því starfi sem þar fer fram.
Tónskólinn er ekki bara fyrir börn heldur líka fullorðna og allir sem áhuga hafa á tónlist geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi.
                                                                                                                                                  Skólastjóri.

Fréttir

Skólaslit Tónskóla Fjallabyggðar 2012.


Skólaslit skólans verða í Allanum Siglufirði, fimmtudaginn 24. maí kl 17.00. Hefðbundin dagskrá verður með tónlistaratriðum, ávarp skólastjóra, afhending viðurkenninga og prófskýrteina. Eftir skólaslitin setjumst við niður og fáum okkur kaffi og kökur saman, áður en nemendur og kennarar fara í sumarfrí. Sá háttur var hafður á í fyrra að foreldrar sjá um að baka eða koma með brauð, skólinn kemur með drykkjarföng og annað sem tilheyrir veislunni.



Innritun í Tónskóla Fjallabyggðar


Innritun í Tónskóla Fjallabyggðar fer fram dagana 2 – 18 maí frá kl 09.00 – 15.00.

Nemendur í Tónskóla Fjallabyggðar 2011 – 2012 þurfa að staðfesta áframhaldandi nám fyrir skólaárið 2012 – 2013. Hægt er að hafa samband í síma 464-9210, 4649132 eða 898-2516 og í tölvupósti tonskoli@fjallabyggd.is

Nýjum nemendum sem sækja vilja nám við skólann 2012 - 2013, er bent á heimasíðu skólans, http://tonskoli.fjallabyggd.is  og sækja þar um  rafrænt, fara í valmynd og innritun og fylla þar út umsókn, fyrir veturinn 2012 – 2013.

 

 


Nýjar kennslugreinar í Tónskóla Fjallabyggðar næsta haust


 Næsta vetur verður boðið upp á nýjar kennslugreinar í Tónskóla Fjallabyggðar. Um er að ræða hljóð- og upptökukennslu, hljómsveitabúðir í samstarfi við Neon, söng- og hljómsveitasmiðjur fyrir Grunnskóla Fjallabyggðar, sem og skólakór; hann verður samstarfsverkefni Tónskóla Fjallabyggðar og Grunnskóla Fjallabyggðar og er ætlaður nemendum í 8.-10. bekk.

Myndir af Sigríði og Ave


Tónskóli Fjallabyggðar færði Sigríði Ölmu Axelsdóttur og Ave Köru Tonisson blóm, í tilefni að vel heppnaða ferð á uppskerhátíð tónlistarskólanna Nótunnar. Sigríður Alma Axelsdóttir fékk veitta viðurkenningu fyrir lagið Minningar, besta frumsamda efnið á grunnstigi. Sigríður Alma mætti í mánudagstíma hjá Ave með viðurkenninguna og til að láta smella af sér mynd með gripinn í leiðinni. Áframhald verður með lagið hennar Sigríðar, en meiningin er að taka það upp í stúdíói skólans og setja það inn á heimasíðu.

Hér eru fleiri myndir af þeim Sigríði Ölmu og Ave Köru.

 


Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf